Fótbolti

Rooney með sögulegt mark í stórsigri Man Utd | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wayne Rooney fagnar sínu 248. marki fyrir Man Utd.
Wayne Rooney fagnar sínu 248. marki fyrir Man Utd. vísir/getty
Manchester United vann afar öruggan 4-0 sigur á Feyenoord þegar liðin mættust á Old Trafford í A-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld.

Með sigrinum fór Man Utd upp fyrir Feyenoord og í 2. sæti riðilsins. United-mönnum dugir jafntefli gegn Zorya Luhansk í lokaumferð riðlakeppninnar til að komast áfram í 64-liða úrslit.

Wayne Rooney var í byrjunarliði Man Utd í kvöld og hann kom sínum mönnum yfir á 35. mínútu með sögulegu marki. Rooney er nú orðinn markahæsti leikmaður Man Utd í Evrópukeppnum með 39 mörk. Hann vantar líka núna aðeins eitt mark til að jafna markamet Sir Bobby Charlton hjá Man Utd.

Heimamenn voru áfram sterkari aðilinn í seinni hálfleik og bættu þá við þremur mörkum.

Juan Mata potaði boltanum yfir línuna á 69. mínútu eftir sendingu Rooneys og sex mínútum síðar skoraði Brad Jones, markvörður Feyenoord, sjálfsmark og staðan orðin 3-0.

Varamaðurinn Jesse Lingard skoraði svo fjórða og síðasta mark Man Utd með góðu skoti í uppbótartíma. Lokatölur 4-0, Man Utd í vil.

Í hinum leik riðilsins vann Fenerbache 2-0 sigur á Zorya Luhansk á heimavelli.

Man Utd 1-0 Feyenoord Man Utd 2-0 Feyenoord Man Utd 3-0 Feyenoord Man Utd 4-0 Feyenoord



Fleiri fréttir

Sjá meira


×