Fótbolti

Rooney fór í handahlaup fyrir son sinn

Eiríkur Stefán Ásgiersson skrifar
Vísir/Getty
Wayne Rooney segir að hann hafi fagnað öðru marka sinna gegn Skotlandi um helgina með handahlaupi fyrir Kai, fimm ára son sinn.

„Hann hefur verið að gera mikið af handahlaupum að undanförnu og pantaði eitt hjá mér,“ sagði Rooney við enska fjölimðla en hann fagnaði marki sínu af mikilli innlifun eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.

„Stundum þegar úrslitin falla ekki með manni þá vilja sumir meina að við séum ekki að leggja okkur fram fyrir land og þjóð. En það er fjarri sannleikanum,“ sagði Rooney.

Í myndbandinu sést Rooney einnig fagna marki í leik með U-16 liði Englands gegn Skotlandi á samskonar hátt.


Tengdar fréttir

Rooney: Mjög sérstakt kvöld fyrir mig

Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins, var kátur eftir 3-1 sigur á Skotum í vináttulandsleik í Glasgow í kvöld en hann skoraði tvö mörk í leiknum og er þar með kominn með 46 mörk fyrir enska landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×