Fótbolti

Rooney ánægður með að fá hvíld fyrir Íslandsleikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Wayne Rooney og íslenska fótboltalandsliðið.
Wayne Rooney og íslenska fótboltalandsliðið. Vísir/Samsett mynd/Getty og Vilhelm
Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins, þurfti að sætta sig við að byrja á varamannabekknum í síðasta leik enska landsliðsins í riðlakeppninni.

Rooney var einn af sex leikmönnum sem duttu út úr byrjunarliðinu fyrir leikinn á móti Slóvakíu. England gerði markalaust jafntefli á móti Slóvökum og missti efsta sætið til Wales.

Í stað þessa að mæta Norður-Írlandi í sextán liða úrslitunum þá bíður liðsins leikur á móti strákunum okkar á mánudagskvöldið.

Enskir blaðamenn höfðu heimildir fyrir því að Wayne Rooney hafi verið mjög hissa á því að vera tekinn út úr liðinu en Manchester United maðurinn segist hafa verið ánægður með að fá auka hvíld.

„Ég virði ákvörðun Roy. Allir leikmenn vilja auðvitað spila en nú verð ég miklu ferskari í leiknum á móti Íslandi í sextán liða úrslitunum," sagði Wayne Rooney á blaðamannafundi en BBC sagði frá.

Rooney datt út úr liðinu eins og þeir Kyle Walker, Danny Rose, Dele Alli, Raheem Sterling og Harry Kane.

Rooney kom reyndar inná sem varamaður á móti Slóvakíu og spilaði síðustu 35 mínúturnar í leiknum en tókst ekki að skora ekki frekar en liðsfélögum hans.

„Ég lít svo á að þetta hafi verið ákvörðun sem Roy þurfti að taka til þess að halda mönnum ferskum og sýna það jafnframt að hann hafi trú á öllum leikmannahópnum," sagði Rooney og bætti við:

„Ég er sammála honum. Leikmennirnir sem komu inn í liðið voru nógu góðir til að ná í sigur en við verðum að hrósa mótherjunum fyrir góðan varnarleik," sagði Rooney.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×