Fótbolti

Rooney: Vítið mun ekki hafa nein áhrif á van Persie

Stefán Árni Pálsson skrifar
Robin van Persie
Robin van Persie Nordicphotos/getty
Wayne Rooney, framherji Man. Utd., heldur því fram að misheppnuð vítaspyrna frá Robin van Persie gegn Real Sociedad í Meistaradeild Evrópu í gær eigi ekki eftir að hafa áhrif á sjálfstraust Hollendingsins.

Leiknum lauk með markalausu jafntefli á Spáni í gærkvöldi en vítaspyrnan var langbesti möguleiki United til að skora í annars virkilega bragðdaufum leik. Van Persie skaut boltanum í stöngina.

„Það brenna allir af vítaspyrnum einhvertímann,“ sagði Rooney eftir leikinn.

„Þetta mun ekki hafa nein áhrifa á hann, ég er viss um það. Það eru vissulega ákveðin vonbrigði að ná ekki í öll þrjú stigin, við fengum bestu færin í leiknum og áttum að klára þetta. Við héldum hreinu og erum enn í efsta sæti riðilsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×