Enski boltinn

Rooney: Hlusta ekki á þetta kjaftæði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wayne Rooney.
Wayne Rooney. vísir/getty
Wayne Rooney, leikmaður Man. Utd, segir að mikið af þeirri gagnrýni sem hann fái sé algjört kjaftæði. Hann mun leggja sig fram hvar sem hann þarf að spila.

United hefur tapað þremur af síðustu leikjum sínum og Rooney hefur svo sannarlega fengið sinn skerf af gagnrýni eftir þessa leiki. Margir stuðningsmenn félagsins vilja að Rooney verði settur á bekkinn.

„Ég hef þurft að fást við svona gagnrýni allan minn feril. Þó vissulega sé meira af henni síðustu ár en þannig er fótboltinn,“ sagði Rooney.

„Ég hlusta á þjálfarann og liðsfélaga mína. Líka fólkið í kringum mig og hlusta ekki á þetta kjaftæði sem fólk er að segha því mikið af því er bara rugl.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×