Enski boltinn

Rooney: Ég hafði engar áhyggjur af markaleysinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Wayne Rooney fagnar einu marka sinna í kvöld.
Wayne Rooney fagnar einu marka sinna í kvöld. Vísir/Getty
Wayne Rooney skoraði þrennu í kvöld þegar Manchester United tryggði sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Manchester United vann fyrri leikinn 3-1 og þetta var svo gott sem komið í hús hjá United þegar Rooney kom United í 1-0 í fyrri hálfleik.

Manchester United slakaði ekki á, Rooney bætti við tveimur mörkum til viðbótar og Ander Herrera innsiglaði síðan öruggan og sannfærandi sigur.

„Ég ánægður með að hafa náð að skora þessi mörk en það sem var mikilvægara var að vinna leikinn. Þetta var risaleikur fyrir klúbbinn og við erum allir mjög ánægðir með að vera í pottinum þegar dregið verið í riðla Meistaradeildarinnar á morgun," sagði Wayne Rooney við BT Sport.

Wayne Rooney hefur mátt þola mikla gagnrýni það sem af er tímabilinu enda var hann ekki búinn að skora fyrir þennan leik.

„Ef ég segi alveg eins og er þá hefði þessi gagnrýni kannski haft einhver áhrif ef ég væri veikari karakter. Ég hafði ekki áhyggjur. Tímabilið var bara að byrja og þegar færin komu þá nýtti ég þau," sagði Rooney.






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×