Enski boltinn

Rooney: „Við verðum að vinna Evrópudeildina“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Wayne Rooney
Wayne Rooney vísir/getty
Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, telur að liðið verði nú að leggja höfuð áherslu á það að vinna Evrópudeildina og komast þannig í Meistaradeild Evrópu.

Liðið tapaði illa fyrir Sunderland, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær og eins og staðan er núna á það ekki mikla möguleika á að enda í efstu fjórum sætunum í deildinni.

„Það verður mjög erfitt að ná fjórða sætinu,“ segir Rooney í samtali við Sky Sports.

„Sigur í Evrópudeildinni er líklega okkar leið inn í Meistaradeildina. Okkar langaði ekkert sérstaklega að fara í Evrópudeildina, en núna verðum við bara að taka þá keppni alvarlega og reyna fara alla leið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×