Sport

Ronda Rousey: Ég kem aftur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ronda Rousey.
Ronda Rousey. Vísir/Getty
Ronda Rousey lofaði aðdáendum sínum að hún ætli að snúa aftur inn í hringinn en bardagaheimurinn er enn að jafna sig eftir óvænt tap hennar á móti hinni 34 ára gömlu Holly Holm í Ástralíu um helgina.

Holly Holm vann bardagann á rothöggi og Ronda Rousey þurfti í kjölfarið að fara upp á spítala til aðhlynningar.  Holm hreinlega hakkað eina stærstu bardagastjörnu heims í sig.

Sjá einnig:Ronda Rousey flutt á sjúkrahús eftir rothögg

Þetta var fyrsta tap Rondu Rousey en hún hafði fram að því haft mikla yfirburði í sínum bardögum og leit hreinlega út fyrir að vera ósigrandi. Ronda Rousey átti hinsvegar fá svör á móti reynsluboltanum Holly Holm sem er frá Albuquerque í Nýja Mexíkó.

Ferð Ronda Rousey upp á spítala eftir bardagann þýddi að hún sleppti því að mæta á blaðamannfundinn eftir bardagann. Það hafði því ekkert heyrst frá henni fyrr en að hún skellti inn skilaboðum á Instagram-síðu sína.

Sjá einnig:Sjáðu fyrsta tap Rondu

Mick Dolce, þjálfari Ronda Rousey talaði um það eftir bardagann að Ronda myndi koma aftur og tók sem dæmi að hún hafi tapað á Ólympíuleikunum á sínum tíma en komið til baka og unnið marga heimsmeistaratitla.

Skilaboð Rousey á Instagram-síðu hennar voru einföld og ekki mörg orð. Þar þakkaði hún öllum fyrir ást og stuðning og fullvissaði jafnframt alla um að það væri í lagi með hana. Hún segist ætla að taka sér smá frí en að hún muni snúa aftur.

A photo posted by rondarousey (@rondarousey) on

MMA

Tengdar fréttir

UFC 193: Brotalamir í vörn Rousey?

Það verður sannkallaður stórviðburður í nótt þegar UFC 193 fer fram. Þar mætir ofurstjarnan Ronda Rousey hinni reyndu Holly Holm.

UFC 193: Sviðsljósið beinist að konunum

UFC 193 fer fram í beinni á Stöð 2 Sport. Ronda Rousey er auðvitað í aðalbardaga kvöldsins og stefnir allt í frábært bardagakvöld í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×