Fótbolti

Ronaldo stefnir á Bayern

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Ronaldo að fagna Konungsbikarnum í nótt
Ronaldo að fagna Konungsbikarnum í nótt vísir/getty
Besti knattspyrnumaður síðasta árs Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid vonast til að vera klár í slaginn þegar lið hans mæti Bayern Munchen í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í næstu viku en Ronaldo var ekki með liði sínu sam vann spænsku bikarkeppnina í gær.

Ronaldo lék síðast með Real Madrid í fyrri leik liðsins gegn Borussia Dortmund 2. apríl í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Mér líður betur og er laus við allan sársauka,“ sagði Ronaldo við heimasíðu Real Madrid eftir sigurinn á Barcelona í gær.

„Ég gæti verið klár á miðvikudaginn eða í seinni undanúrslitaleiknum.

„Þetta kemur smám saman og ég vil ekkert meira en að hjálpa liðinu eins og ég get, eins fljótt og ég get,“ sagði Ronaldo.

Þessi 29 ára gamli sóknarmaður hefur verið stórkostlegur með Real Madrid á leiktíðinni og skorað 45 mörk í 41 leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×