Fótbolti

Ronaldo skorað gegn öllum liðum nema einu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo hefur náð mögnuðum árangri á þeim tíma sem hann hefur spilað með Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni.

Spænska blaðið Marca birtir enn eina mögnuðu staðreynd um markaskorun Ronaldo í dag en þar kemur fram að síðan hann gekk í raðir Real Madrid árið 2009 hafi hann spilað gegn 51 liði - og skorað gegn öllum nema einu.

Flest mörkin hefur hann skorað gegn Sevilla eða 28 talsins. Þar á eftir kemur Barcelona og Atletico með 24 mörk hvor. Eina liðið sem hefur takist að halda hreinu gegn Ronaldo er króatíska liðið Dinamo Zagreb.

Ronaldo hefur skorað 398 mörk í 586 mótsleikjum með Real Madrid. Hann er á miklu skriði þetta tímabilið og er komiinn með átján deildarmörk í aðeins tíu leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×