Ronaldo og Kessler best í Evrópu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. ágúst 2014 16:55 Ronaldo vann Meistaradeild Evrópu og spænsku bikarkeppnina með Real Madrid á síðustu leiktíð. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, og Nadine Kessler voru kjörin besta knattspyrnufólk Evrópu nú rétt í þessu, en athöfnin fór fram strax á eftir drættinum í Meistaradeild Evrópu. Ronaldo átti frábært tímabil í fyrra, en hann var í sigurliði Real Madrid í spænsku bikarkeppninni og Meistaradeild Evrópu. Portúgalinn setti markamet á síðustu leiktíð þegar hann skoraði 17 mörk í Meistaradeildinni, en hann skoraði m.a. tvö mörk í undanúrslitunum gegn Bayern München og fjórða og síðasta mark Real í úrslitaleiknum gegn Atletico Madrid. Alls skoraði Ronaldo 51 mark í 47 leikjum á síðustu leiktíð. Hann er einnig handhafi Gullboltans, Ballon d'Or.Manuel Neuer og Arjen Robben, leikmenn Bayern München, voru einnig tilnefndir til verðlaunanna. Kessler var kjörin besta knattspyrnukona Evrópu, en hún vann bæði þýska meistaratitilinn og Meistaradeild Evrópu með Wolfsburg á síðustu leiktíð. Samherjar Kessler hjá Wolfsburg, hin sænska Nilla Fischer, og hin þýska Martina Müller voru einnig tilnefndar.Nadine Kessler leikur með Wolfsburg í Þýskalandi.Vísir/Getty
Fótbolti Tengdar fréttir Liverpool í riðli með Real Madrid - Meistaradeildardrátturinn Kolbeinn Sigþórsson mætir Luis Suarez og Zlatan Ibrahimovic í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en dregið var í kvöld. Cheslea var langheppnast með riðil af ensku liðunum. 28. ágúst 2014 14:33 Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Tiger og Rory fá rosalega hollustubónusa Golf Fleiri fréttir Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Sjá meira
Liverpool í riðli með Real Madrid - Meistaradeildardrátturinn Kolbeinn Sigþórsson mætir Luis Suarez og Zlatan Ibrahimovic í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en dregið var í kvöld. Cheslea var langheppnast með riðil af ensku liðunum. 28. ágúst 2014 14:33