Fótbolti

Ronaldo með bæði mörkin í sigri Madríd

Ronaldo skoraði bæði mörkin í kvöld.
Ronaldo skoraði bæði mörkin í kvöld. vísir/getty
Cristiano Ronaldo afgreiddi Sporting Gijon fyrir Real Madrid, en hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Ronaldo kom Real yfir af vítapunktinum á fimmtu mínútu og þrettán mínútum síðar var hann aftur á ferðinni eftir undirbúning Nacho Fernandez.

Carlos Carmona minnkaði muninn fyrir Sporting á 35. mínútu, en þeir fengu gullið tækifæri til þess að jafna metin í síðari hálfleik þegar þeir fengu vítaspyrnu. Duje Cop skaut framhjá úr henni.

Lokatölur urðu 2-1 sigur Real, en Real er með sjö stiga forskot á Barcelona sem á leik til góða á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×