Fótbolti

Ronaldo klúðraði vítaspyrnu þegar Real missteig sig

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid.
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid. vísir/getty
Real Madrid tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttunni á Spáni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Malaga á útivelli.

Cristiano Ronaldo kom Real yfir á 33. mínútu og hann hefði getað tvöfaldað forystuna á 36. mínútu, en hann klúðraði þá vítaspyrnu.

Staðan var 0-1 allt þangað til á 67. mínútu þegar Raul Albentosa jafnaði metin og þannig urðu lokatölur, 1-1.

Real er nú níu stigum á eftir Barcelona, en Malaga er í tíunda sæti með 31 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×