Fótbolti

Ronaldo er frekar leiðinlegur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Van der Vaart heilsar Ronaldo fyrir landsleik.
Van der Vaart heilsar Ronaldo fyrir landsleik. vísir/getty
Hollendingurinn Rafael van der Vaart heillaðist ekki mikið af persónuleika Cristiano Ronaldo er þeir léku saman hjá Real Madrid.

Persónuleiki Ronaldo hefur verið til umræðu á EM eftir leiðinleg ummæli leikmannsins í garð íslenska liðsins.

Van der Vaart spilaði með Ronaldo í Madrid í eitt ári áður en hann fór til Tottenham árið 2010.

„Ég held að við gætum ekki orðið nánir vinir. Cristiano er nefnilega frekar leiðinlegur,“ sagði Van der Vaart sem spilar með Real Betis.

Hann gat þó hrósað Portúgalanum fyrir mikla vinnusemi.

„Hann er fyrstur á æfingasvæðið og fer síðastur heim.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×