Fótbolti

Ronaldo drullusama um FIFA-skandalinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo var eitthvað illa fyrirkallaður í gær.
Ronaldo var eitthvað illa fyrirkallaður í gær. vísir/getty
Cristiano Ronaldo, leikmanni Real Madrid og portúgalska landsliðsins, er slétt sama um umrædda spillingu innan FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins, sem hefur verið mikið í umræðunni síðustu vikurnar.

Á viðburði á vegum Nike var Ronaldo spurður af blaðamanninum Andres Oppenheimer um hans skoðun á FIFA-skandalnum.

Portúgalska stórstjarnan hafði hins vegar lítinn áhuga á að tjá sig um málefnið.

„Á ég að ræða um FIFA? Mér er sama um FIFA og Katar. Mér er drullusama,“ sagði Ronaldo sem stóð svo upp og gekk út.

Atvikið má sjá í myndbandinu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×