Fótbolti

Ronaldo bestur samkvæmt sérfræðingum Guardian

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo átti stórkostlegt ár.
Ronaldo átti stórkostlegt ár. vísir/afp
Cristiano Ronaldo skipar toppsætið á lista the Guardian yfir 100 bestu fótboltamenn heims. Alls tóku 73 fótboltasérfræðingar frá 28 löndum þátt í kjörinu, en listinn var birtur í heild sinni á aðfangadag. Hann má sjá með því að smella hér.

Meðal sérfræðinga Guardian voru Hernán Crespo, Didi Hamann, Slaven Bilic og Gilberto Silva, auk margra virtra blaðamanna.

Ronaldo fékk yfirburðakosningu, eða 74% atkvæðanna. Hann velti Lionel Messi úr sessi, en Argentínumaðurinn, sem var efstur 2012 (100%) og 2013 (60%), fékk aðeins 12% atkvæðanna í ár. Manuel Neuer, markvörður Bayern München og heimsmeistara Þýskalands, fékk 8% atkvæðanna og situr í 3. sæti listans.

Hazard er hástökkvari listans.vísir/afp
Bayern München á flesta leikmenn á listanum, eða 12 talsins. Næst kemur Barcelona með 10 leikmenn, en níu leikmenn koma frá bæði Chelsea og Real Madrid.

Hvað deildaskiptingu varðar, þá koma 31 af þessum 100 bestu úr ensku úrvalsdeildinni, 25 spila á Spáni og 15 í Þýskalandi.

Flestir leikmenn á listanum koma frá Spáni, eða 14 talsins. Ellefu koma frá Þýskalandi, níu frá Brasilíu, átta frá Argentínu og sex frá Englandi og Frakklandi.

Eden Hazard er hástökkvari listans, en hann fór upp um 84 sæti; úr því 100. í það 16.

Hinn tvítugi Raheem Sterling er yngsti leikmaðurinn á listanum, en hann situr í 52. sæti. Sá elsti er brasilíski markvörðurinn Rogerio Ceni, sem er 41 árs. Hann er í 98. sæti.

James Rodríguez kemur nýr inn á listann í 15. sæti.vísir/afp
20 bestu leikmenn heims að mati sérfræðinga the Guardian:

1. Cristiano Ronaldo - upp um eitt sæti frá 2013

2. Lionel Messi -1

3. Manuel Neuer +19

4. Arjen Robben +10

5. Thomas Müller +20

6. Luis Súarez +3

7. Neymar -1

8. Gareth Bale -1

9. Philipp Lahm +6

10. Sergio Agüero stendur í stað

11. Toni Kroos +29

12. Diego Costa +23

13. Zlatan Ibrahimovic -10

14. Ángel Di María +58

15. James Rodríguez nýr á listanum

16. Eden Hazard +84

17. Thibaut Courtois +30

18. Yaya Touré +1

19. Karim Benzema +36

20. Paul Pogba nýr á listanum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×