Fótbolti

Ronaldo: Við vorum betri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo á ferðinni í kvöld.
Ronaldo á ferðinni í kvöld. vísir/getty
Cristiano Ronaldo er enn á ný kominn í úrslit Meistaradeildarinnar og var að vonum himinlifandi.

„Við erum ánægðir að vera komnir í úrslitaleikinn enda er sérstakt að komast þangað,“ sagði Ronaldo.

Real Madrid lagði Man. City í kvöld, 1-0, í seinni leik liðanna en það var eina markið sem var skorað í báðum leikjunum.

Það verður því Madridarslagur í úrslitunum í annað sinn á síðustu þremur árum. Atletico Madrid tryggði sig í úrslitaleikinn í gær.

„1-0 er kannski ekki mikið en við vorum betra liðið. Ég hafði ekki spilað í 15 daga en fólk gleymir oft að ég er fljótur að jafna mig. Ég er þreyttur en rosalega hamingjusamur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×