Fótbolti

Ronaldo: Ég segi eitthvað eftir viku

Einar Sigurvinsson skrifar
Er Cristiano Ronaldo á förum frá Madrid?
Er Cristiano Ronaldo á förum frá Madrid? vísir/getty
„Það var stórkostlegt að spila með Real Madrid,“ sagði Cristiano Ronaldo eftir Meistaradeildarsigur Real Madrid í gær. Athygli vakti að Ronaldo talaði um feril sinn með Real Madrid í þátíð en nú hefur hann sagt að ástæðan fyrir því hafi ekki verið nein tilviljun.

„Ég talaði of snemma en það mun eitthvað gerast. Þetta var ekki rétti tímapunkturinn, en ég var hreinskilinn,“ segir Ronaldo.

Þá segir hann að stuðningsmenn sínir þurfi ekki að bíða lengi eftir að fá að heyra hvert hans næsta skref á ferlinum sé.

„Ég segi eitthvað eftir viku. Ég tala ekki mikið, en þegar ég tala, þá tala ég.“

Cristiano Ronaldo neitar því einnig að þessi orð hans séu leið til þess að fá betri samning hjá Real Madrid.

„Það er búinn að vera langur aðdragandi að þessu, þetta snýst ekki um peninga,“ segir Ronaldo.

„Ég hef unnið Meistaradeild Evrópu fimm sinnum, fimm Ballon d'Or. Ég var búinn að skrá mig á spjöld sögunnar, en nú er það enn skýrara.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×