Fótbolti

Ronaldo: 2016 hefur verið besta árið mitt á ferlinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo vann mikið á árinu 2016.
Cristiano Ronaldo vann mikið á árinu 2016. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo hefur átt frábæran feril og mörg mögnuð ár í boltanum. Hann er engu að síður sannfærður um að árið 2016 sé það besta af þeim öllum.

Ronaldo er einn af þeim sem kemur til greina sem knattspyrnumaður ársins hjá FIFA en hinir eru Frakkinn Antoine Griezmann og Argentínumaðurinn Lionel Messi.

Árið hefur vissulega verið magnað en Cristiano Ronaldo vann Meistaradeildina með Real Madrid, Evrópumeistaratitilinn með Porútugal og loks heimsmeistarakeppni félagsliða með Real Madrid þar sem hann skoraði þrennu í úrslitaleiknum.

„Þetta var líklega besta árið mitt hingað til,“ sagði Cristiano Ronaldo í viðtali við heimasíðu FIFA.  Hann átti frábært ár með Manchester United 2008 og með Real Madrid 2014. Þau þurfa aftur á móti að sætta sig við annað og þriðja sætið.

Ronaldo vældi eftir jafnteflið við Ísland í fyrsta leiknum á EM í Frakklandi en seinna kom í ljós að íslenska landsliðið var enginn farþegi á sínu fyrsta Evrópumóti.  Portúgalska landsliðið fór síðan alla leið og vann 1-0 sigur á Frakklandi í úrslitaleiknum.

„Við unnum fyrsta titil Portúgals. Við unnum Meistaradeildina og heimsmeistarakeppni félagsins. Ég gæti ekki beðið um meira,“ sagði Ronaldo.

„Fólk efast enn um mig, Real Madrid og landsliðið. Nú hafa þau hinsvegar sönnun. Við höfum unnið allt,“ sagði Ronaldo.

„Þetta hefur verið stórbrotið ár og ég mjög ánægður með það. Ég vil þakka liðsfélögum mínum, bæði hjá landsliðinu og Real Madrid,“ sagði Ronaldo.

Cristiano Ronaldo gæti bætt við enn einni rósinni í hnappagatið 9. janúar næstkomandi en þá verðlaunar FIFA best knattspyrnumann heims á árinu 2016. Ronaldo er sigurstranglegur þótt að það sé alltaf erfitt að ganga framhjá Lionel Messi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×