Mitt Romney, sem tapaði fyrir Rick Santorum í forkosningum Repúblikanaflokksins í þremur ríkjum Bandaríkjanna á þriðjudag, segist þrátt fyrir það nokkuð viss um að verða forsetaefni flokksins.
Santorum sagði sigur sinn sýna stuðning almennings við kristilega íhaldsstefnu. Hófsemi Romneys bjóði ekki upp á neinn valkost við stefnu Baracks Obama Bandaríkjaforseta.
Næstu forkosningar verða í Maine á laugardaginn kemur, síðan í Arizona og Michigan í lok mánaðarins en 6. mars verður svo „stóri þriðjudagurinn“, sem búist er við að ráði úrslitum því þá verða forkosningar í tíu ríkjum samtímis.- gb