Fótbolti

Rómarliðin unnu bæði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rómverjar minnkuðu forskot Juventus á toppnum niður í eitt stig.
Rómverjar minnkuðu forskot Juventus á toppnum niður í eitt stig. vísir/getty
Roma minnkaði forskot Juventus á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar niður í eitt stig með 0-1 útisigri á Genoa í dag.

Eina mark leiksins var sjálfsmark Armandos Izzo, varnarmanns Genoa.

Roma er með 41 stig í 2. sæti deildarinnar, einu stigi meira en Juventus sem á tvo leiki til góða. Juventus fær Bolgna í heimsókn í kvöld.

Erkifjendur Roma, Lazio, báru sigurorð af Crotone með einu marki gegn engu. Það gerði Ciro Immobile á lokamínútunni.

Lazio er í 4. sæti deildarinnar með 37 stig. Atalanta, sem vann 1-4 sigur á Chievo í dag, er í 5. sætinu með 35 stig.

Þá gerðu Sussuolo og Torino markalaust jafntefli.


Tengdar fréttir

Fyrsta tap Udinese í einn og hálfan mánuð

Emil Hallfreðsson og félagar í ítalska úrvalsdeildarliðinu töpuðu á grátlegan hátt fyrir Inter á heimavelli í dag. Lokatölur 1-2, Inter í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×