Glamour

Rómantískt sumar í vændum hjá Burberry

Ritstjórn skrifar
Burberry línan er sú mest spennandi sem við höfum séð frá tískuhúsinu lengi.
Burberry línan er sú mest spennandi sem við höfum séð frá tískuhúsinu lengi. Myndir/Getty
Christopher Bailey sýndu vorlínu Burberry í gær á tískuvikunni í London. Línan er nú þegar komin á sölu á vefsíðu Burberry

Það verður að segjast að þetta sé fyrsta spennandi línan frá Burberry í nokkur ár sem eru miklar gleðifréttir. Tískuhúsið er eitt það þekktasta frá Bretlandi og því mikilvægt að halda því vel gangandi. 

Í vorlínunni má finna fullt af pífum, perlum og rómantískum sniðum. Ekki er mikið um liti en línan samanstendur einungis af svörtum, hvítum, kremuðum og silfurlitum. Við höfum valið okkar uppáhalds dress hér fyrir neðan. 






×