Enski boltinn

Roma íhugar kauptilboð Liverpool í Alisson

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alisson
Alisson Vísir/Getty
Liverpool hefur gert kauptilboð í brasilíska markvörðinn Alisson samkvæmt fjölmiðlum á Englandi. Forráðamenn Roma eru sagðir íhuga tilboðið.

Tilboðið á að hljóma upp á 62 milljónir punda en ítalska liðið vill 66 milljónir fyrir markvörðinn. Alisson var aðalmarkvörður Brasilíu á HM í Rússlandi og stóð í markinu í öllum fimm leikjum þeirra.

Flestir stuðningsmenn Liverpool vilja að félagið kaupi nýjan markvörð þar sem Loris Karius gerði sig sekan um stór mistök í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor og voru tvö marka Real í 3-1 sigrinum vegna mistaka Þjóðverjans.

Seinna var gefið út að Karius hefði fengið heilahristing í leiknum og gert mistökin vegna þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×