Bílar

Rolls Royce segist engan keppinaut eiga

Finnur Thorlacius skrifar
Rolls Royce Dawn hefur fært meðalaldur kaupenda Rolls Royce bíla niður.
Rolls Royce Dawn hefur fært meðalaldur kaupenda Rolls Royce bíla niður.
Mikla athygli vakti í bílaheiminum orð eins æðstu stjórnenda Rolls Royce í viðtali við rúmenskt bílatímarit um daginn að fyrirtækið ætti ekki neinn keppinaut og enginn bílaframleiðandi væri fyrir ofan Rolls Royce. Hann sagði að Bentley væri í raun ekki neinn keppinautur Rolls Royce, enda mætti fá tvo Bentley bíla fyrir verð eins Rolls Royce bíls.

“Ekkert bílamerki bíður viðskiptavinum sínum meiri lúxus, búnað og sérlausnir sniðnar að hverjum og einum viðskiptavini, líkt og við hjá Rolls Royce gerum”. Mörgum finnst þessi orð eins af yfirmönnum breska lúxusbílaframleiðandans nokkuð roggin, en þó má kannski finna í þeim sannleikskorn.

Meðalverð bíla Rolls Royce er 300.000 evrur, eða 34 milljónir króna. Meðalaldur kaupenda Rolls Royce bíla er nú ríflega 50 ár og hefur þessi aldur lækkað um 10-20 ár á síðustu áratugum. Tilkoma Wraith Coupe og Dawn bíla Rolls Royce hefur fært meðalaldurinn mikið niður að undanförnu, en meðalaldur kaupenda þeirra bílgerða liggur á milli 40 og 50 ára aldurs.

Vel gengur í rekstri Rolls Royce þessa dagana og tókst fyrirtækinu að selja 4.011 bíla í fyrra og var aukningin 6% á milli ára. Höfuðstöðvar Rolls Royce eru í Crewe í nágrenni London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×