Tónlist

Rokkveisla á Kex

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Agent Fresco.
Agent Fresco.
Lenovo á Íslandi og Kexland blása til rokkveislu á Kex Hostel á morgun, 26. september.

Tónlistarmaðurinn Pétur Ben og hljómsveitirnar Agent Fresco, Dimma og Low Roar koma fram á tónleikunum.

Dagskráin er afar fjölbreytt og því ættu margir að finna eitthvað við sitt hæfi - sérstaklega þeir sem eru miklir rokkunnendur.

Tónleikarnir hefjast klukkan 19.00 á Pétri Ben, því næst stígur Low Roar á svið, svo Agent Fresco og Dimma lokar tónleikunum. Hver listamaður spilar í um klukkustund og er aðgangur á veisluna ókeypis.

Low Roar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×