Tónlist

Rokkarar rokka til góðs

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Smutty Smiff stendur fyrir tónleikunum.
Smutty Smiff stendur fyrir tónleikunum. Vísir/GVA
Smutty Smiff stendur fyrir góðgerðartónleikum á sunnudag og hefur fengið til liðs við sig nokkra af vinsælustu tónlistarmönnum landsins. Um er að ræða styrktartónleika fyrir Frosta Jay Freeman.

Frosti er aðeins sjö ára gamall en greindist með afar sjaldgæfan erfðasjúkdóm sem kallast Ataxia telangiectasia en Frosti er þriðji Íslendingurinn sem greinist með sjúkdóminn, sem leggst meðal annars á taugakerfi og ónæmiskerfi líkamans. Ekki er til lækning við sjúkdómnum, né hægt að hindra framgang hans og því beinist meðferð fyrst og fremst að því að auka lífsgæði Frosta.

Fram koma Bubbi Morthens, Daníel Ágúst, Dimma, Helgi Björns, Pollapönk og margir fleiri listamenn.

Fyrir utan tónleikaveislu verða afar sjaldgæfar ljósmyndir boðnar upp en um er ræða ljósmyndir sem hinn heimsfrægi Bob Gruen hefur tekið af listamönnum á borð við John Lennon, Led Zeppelin, Bob Dylan, Elton John og fleiri.

Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 og fara fram í Háskólabíó. 50% afsláttur er fyrir 15 ára og yngri ef keyptir eru miðar í móttöku Miði.is í Skaftahlíð 24 eða við innganginn í Háskólabíói.

vísir/gva





Fleiri fréttir

Sjá meira


×