Tónlist

Rokkað gegn siðapostulum

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Abominor skrifaði nýlega undir samning hjá írsku plötuútgáfunni Invictus Productions.
Abominor skrifaði nýlega undir samning hjá írsku plötuútgáfunni Invictus Productions. mynd/kristinn guðmundsson
„Andkristni er það að sætta sig ekki við kúgun í skjóli trúar. Þetta snýst um það að taka „sannleikann“ af sjálfskipuðum siðapostulum, sem með fordómum og afturhaldshyggju þykjast eiga að ákveða hvað aðrir mega og mega ekki,“ segir Eyvindur Gauti Vilmundarson, einn aðstandenda tónlistarhátíðarinnar Andkristni sem haldin verður á Gamla Gauknum 21. desember.

Andkristni er langlífasta þungarokkshátíð Íslands. „Hátíðin var í byrjun óbeint svar við Kristnihátíð sem haldin var á Þingvöllum árið 2000. Með henni vildu aðstandendur Andkristnihátíðar koma skoðun sinni á framfæri varðandi kostnað og annað sem fylgdi þeirri hátíð, sem kalla má svartan blett á sögu þjóðar,“ segir Eyvindur.

Á tónleikunum koma fram svartmálmssveitirnar Svartidauði, Sinmara, Misþyrming, Abominor og Mannvirki. „Það má benda á að Íslendingar hafa nú hamrað svartmálminn í hartnær 20 ár og því vel við hæfi að gera hann sýnilegri og að sem flestir kynnist honum.“

Þess má geta að í fréttatilkynningu frá Andkristni segjast aðstandendur hátíðar harma ummæli listamannsins Snorra Ásmundssonar um að sataníska orku legði af Framsóknarflokknum. „Satanískri orku yrði seint sóað í þann lýð. Satan er líf, ljós og unaður, ólíkt Framsóknarflokknum,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×