MÁNUDAGUR 20. MAÍ NÝJAST 23:30

Di Canio úthúðar Phil Bardsley

SPORT

Rokk í Reykjavík

Lífið 19. október 2004 00:01
Rokk í Reykjavík
Iceland Airwaves-hátíðin var fyrst haldin árið 1999. Þá voru rétt rúmlega þúsund manns samankomnir eina kvöldstund í Flugskýli fjögur á Reykjavíkurflugvelli og hlustuðu á leik þriggja erlendra hljómsveita og fjögurra íslenskra. Nú, fimm árum síðar, stendur hátíðin í fimm daga, hún er haldin á sex stöðum í miðborg Reykjavíkur og fram koma 137 hljómsveitir, sólóistar og plötusnúðar. Meirihlutinn er íslenskur en 22 koma utan úr heimi.

Þorri gesta í flugskýlinu forðum var íslenskur en nú hafa yfir þúsund útlendingar keypt sér miða í gegnum söluskrifstofur Icelandair austan hafs og vestan og viðbúið að enn fleiri hafi komið til landsins á eigin vegum og fest sér miða á Íslandi. Von er á um 150 fjölmiðlamönnum, sem er talsverð aukning frá því sem var í fyrra.

Magnús Oddsson ferðamálastjóri er ánægður með tónlistarveisluna enda kærkomin viðbót við annað sem laðar útlendinga til landsins. "Alllir viðburðir eru góðir, ekki síst þeir sem haldnir eru utan háannatíma." Magnús segir erfitt að meta sérstaklega gagnsemi landkynningarinnar sem af Iceland Airwaves hlýst enda koma yfir átta hundruð blaðamenn til landsins á ári hverju og skrif þeirra renna oft saman við annað. "Við höfum hins vegar ekki séð þess merki að tónlistin ein og sér dragi fólk til Íslands. Þegar við spyrjum erlenda gesti hvers vegna þeir komu til landsins er það langoftast vegna náttúrunnar. Við eigum enn eftir að sjá það svart á hvítu að tónlist hafi þar eitthvað að segja, en sá dagur kann að koma," segir Magnús.

Þróast frá ári til árs

Fyrirtækið Hr. Örlygur annast framkvæmd Iceland Airwaves en Icelandair og Reykjavíkurborg styðja myndarlega við bakið á hátíðinni. Í fyrra gekkst borgin við að leggja fimmtán milljónir króna til verkefnisins á fjórum árum og verðmæti framlags Icelandair er metið á um tíu milljónir á ári. Er það fólgið í farseðlum, kynningarstarfi og beinhörðum peningum.

Þorsteinn Stephensen hjá Hr. Örlygi unir nokkuð glaður við sitt. Tvö þúsund og fimm hundruð miðar eru í boði og ógjörningur, eins og sakir standa, að fjölga þeim. "Við seljum í raun eins marga miða og við getum. Flugsæti og hótelherbergi bjóða ekki upp á mikið meira og það gæti skapast öngþveiti fyrir utan staðina ef gestirnir væru fleiri." Hann bendir á að góðir tónleikastaðir í miðborg Reykjavíkur séu ekki mjög margir en þeim hafi þó fjölgað og aðstaða batnað. Engu að síður er mikilvægt að þróa hátíðina frá ári til árs. "Hún þarf að verði betri í ár en í fyrra. Áhuginn dofnar ef boðið er upp á það sama og árið áður."

Erfitt er að meta peningalega veltu Iceland Airwaves en hún er talsverð. Einföld margföldun á miðaverði (5.000) og gestafjölda (2.500) sýnir að tólf og hálf milljón fæst í kassann. En kostnaðurinn er mikill og víða liggja verðmæti sem erfitt er að meta í krónum og aurum. Þorsteinn segir sveiflurnar í afkomunni litlar. "Þetta hefur legið þægilega öðru hvoru megin við núllið. Það er aldrei mikill afgangur og aldrei rosalegt tap."

Rokkborgin Reykjavík

Þátttaka Icelandair í Iceland Airwaves stafar ekki bara af rokkáhuga stjórnenda félagsins. Hátíðin er liður í markaðssetningu Íslands, og þá sér í lagi Reykjavíkur, sem spennandi áfangastaðar utan háannatíma. "Við höfum unnið að þróun ímyndar Reykjavíkur sem hressilegrar og skemmtilegrar borgar með tengsl við náttúruna," segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. "Liður í því er að búa til viðburði til að styrkja þessa ímynd. Við bæði auglýsum Iceland Airwaves sérstaklega og fáum umfjöllun í fjölmiðlum. Afraksturinn er því tvíþættur, annars vegar fáum við ferðamenn til að koma á hátíðina sjálfa og hins vegar er þetta tækifæri til að koma Íslandi og Reykjavík á framfæri í gegnum fjölmiðla."

Guðjón segir árangurinn þegar góðan, umfjöllunin hafi verið mikil og að mestu jákvæð. "Reykjavík hefur orðið sterka ímynd sem borg áhugaverðrar tónlistar og þar er svo sem fleiru að þakka, t.d. Björk og Sigur Rós. En Iceland Airwaves þykir öðruvísi og sérkennileg og það er einmitt það sem við erum að sækjast eftir. Að auki hefur farþegafjöldinn vaxið með árunum og hátíðin hefur náð eyrum fólks utan Bandaríkjanna og Bretlands. Nú koma gestir einnig frá Skandinavíu, Þýskalandi og víðar af meginlandi Evrópu."
Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Lífið 19. maí 2013 18:45

Dorrit mætti í íslenskri hönnun

Heklugos var haldið í annað sinn síðastliðinn fimmtudag á Ásbrú í Eldey frumkvöðlasetri þar sem rúmlega 500 manns fjölmenntu á viðburðinn til að kynna sér hönnun á Suðurnesjum. Heiðursgestir voru Óla... Meira
Lífið 19. maí 2013 13:00

Stórfurðulegir skór

Það voru margir sem ráku upp stór augu þegar þúsundþjalasmiðurinn Julianne Hough rölti í gegnum LAX-flugvöll á föstudaginn. Meira
Lífið 19. maí 2013 12:00

Ólympíuhafi í það heilaga

Jessica Ennis, Ólympíumeistarinn í sjöþraut, brosti sínu blíðasta um helgina þegar hún gekk að eiga unnusta sinn Andy Hill í St. Michael and All Angels-kirkjunni í Derbyshire á Englandi. Meira
Lífið 19. maí 2013 11:30

Nýr skemmtistaður opnar á Hverfisgötu

Glænýr skemmtistaður sem ber heitið Reykjavik Beats opnaði á Hverfisgötu 46 á föstudaginn. Meira
Lífið 19. maí 2013 11:00

Fyndin og kynþokkafull

Kristen Wiig hefur sýnt það og sannað í sjónvarpsþáttunum Saturday Night Live að hún er ein fyndnasta kona heims. Hún er einnig afar kynþokkafull eins og sést í nýjasta hefti tímaritsins Harper's Baza... Meira
Lífið 19. maí 2013 10:00

Já, þetta er fleginn kjóll!

Leikkonan Amy Adams var í ansi flegnum kjól á setti myndarinnar American Hustle fyrir helgi. Meira
Lífið 19. maí 2013 09:45

"Ég er bara mjög ánægður"

"Ég er bara mjög ánægður," segir Eyþór Ingi Gunnlaugsson eftir úrslitin í Eurovision í gærkvöldi í meðfylgjandi viðtali sem tekið var við hann. Meira
Lífið 19. maí 2013 09:00

Þeir hræktu framan í mig

Leikarinn Zach Galifianakis hefur slegið rækilega í gegn í Hangover-myndunum. Hann þarf sjálfur ekki að hafa áhyggjur af timburmönnum þar sem hann hætti að drekka fyrir stuttu. Meira
Lífið 19. maí 2013 17:00

Hver er þessi Peter?

Felix Bergssyni var tíðrætt um vin sinn Peter í lýsingum sínum af Eurovision í gær. En hver er maðurinn? Meira
Lífið 18. maí 2013 17:45

Lokaorð Eyþórs til þjóðarinnar fyrir kvöldið

Eyþór Ingi Gunnlaugsson syngur brot úr laginu Ég á líf til þjóðarinnar í myndskeiðinu. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:45

Greinilega ekkert stressaðir fyrir kvöldið

Það mætti halda að Pétur Örn Guðmundsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Örlygur Smári séu í nettu kæruleysiskasti þegar þetta viðtal er tekið. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:30

Eurovisionhópurinn í góðum fíling á leið í höllina

Það fer ekki á milli mála að stemmarinn er mjög góður hjá Íslendingunum í Malmö. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:00

Táraðist yfir kommentakerfunum

Enginn þekkir mann betur en eiginkonan og haft er fyrir satt að það megi ráða í innræti manna af framkomu þeirra við fjölskyldu sína. Samkvæmt því þarf þjóðin ekki að kvíða forsætisráðherratíð Sigmund... Meira
Lífið 18. maí 2013 13:30

Eyþór klæddist hvíta jakkanum

Eyþór Ingi Gunnlaugsson setti inn þessa mynd af sér á Facebook í hádeginu þegar hann var nýbúinn að ganga um í höllina í Malmö með eftirfarandi skilaboðum á ensku: Meira
Lífið 18. maí 2013 13:00

Segir nei við lýtaaðgerðum

Christy Turlington er af mörgum talin hin eina, sanna ofurfyrirsæta. Hún hefur átt góðu gengi að fagna síðan hún byrjaði kornung í bransanum en í dag er hún 44ra ára. Meira
Lífið 18. maí 2013 12:00

Klárlega kjóll kvöldsins

Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria lét svo sannarlega taka eftir sér á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi. Meira
Lífið 18. maí 2013 11:00

Erfitt að gera upp á milli þessara tveggja

Leikkonan Jennifer Aniston og ofurfyrirsætan Kate Moss eru meðal fegurstu kvenna heims. Meira
Lífið 18. maí 2013 10:00

Poppstjarna í bílslysi

Poppstjarnan George Michael slasaðist lítillega þegar hann lenti í bílslysi í London á fimmtudag. Meira
Lífið 18. maí 2013 09:00

Finnst Rihanna kynþokkafyllst

Ungstirnið Miley Cyrus var nýlega valin heitasta kona heims af tímaritinu Maxim. Meira
Lífið 18. maí 2013 22:00

Vill fyndna kærustu

Leikarinn Chris Pine fer með hlutverk í kvikmyndinni Star Trek Into Darkness. Hann var nýverið gestur í spjallþættinum Ellen DeGeneres og var þá inntur eftir því hvernig konu hann heillaðist helst af. Meira
Lífið 18. maí 2013 12:00

Adele er best fyrir flughrædda

Lagið Someone like you með bresku söngkonunni Adele hentar best til að róa taugar flughræddra, ef marka má rannsókn sem kvíðasálfræðingurinn Dr. Becky Spelman framkvæmdi fyrir tónlistarveituna Spotify... Meira
Lífið 18. maí 2013 11:00

Svíarnir leggja allt undir í Eurovison

"Þetta var frábær upplifun og stemmningin í höllinni var vægast sagt rosaleg. Svíar leggja greinilega allt undir því þeir eru líka með hrikalega flott lag í keppninni í ár,“ segir Kristín Inga J... Meira
Lífið 18. maí 2013 09:30

Sprettreið um hverfið

"Þetta er hjólasprettreið og keppt er í tveimur flokkum; 15 kílómetra leið sem nefnist Fransbrauð og 30 kílómetra leið sem kallast Rúgbrauð,“ segir Böðvar Guðjónsson, talsmaður Kex hostels, um s... Meira
Lífið 18. maí 2013 09:00

Busta Rhymes notaði lag Jakobs án leyfis

Jakob Frímann Magnússon ætlar að hafa samband við bandarísku höfundarréttarsamtökin ASCAP vegna notkunar Rhymes á laginu Burlesque in Barcelona. Meira
Lífið 18. maí 2013 08:30

Man fyrst eftir Pretty Woman

Fyrsta kvikmyndin sem leikkonan Emma Watson man eftir að hafa séð er Pretty Woman með Juliu Roberts í aðalhlutverki. Í viðtali við W segist Watson hafa verið sjö ára gömul þegar hún sá myndina. Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Lífið / Rokk í Reykjavík
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000