Enski boltinn

Rojo getur orðið vinsæll á Old Trafford

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Marcos Rojo er að mæta til að styrkja varnarleikinn.
Marcos Rojo er að mæta til að styrkja varnarleikinn. vísir/Getty
Manchester United gekk í gær frá kaupum á argentínska varnarmanninum Marcos Rojo frá Sporting Lissabon eftir mikið japl, jaml og fuður. Rojo hefur látið öllum illum látum hjá félaginu og heimtað sölu, en ekkert fengið í staðinn nema skömm í hattinn.

Sporting tókst að koma verðinu á þessum frekar lítt þekkta varnarmanni upp í 16 milljónir punda og fær auk þess vængmanninn Nani aftur heim til Sporting að láni.

Eins og síðasta sumar hefur Manchester United ekkert gengið á leikmannamarkaðnum. Um leið og félagaskiptaglugginn opnaðist var gengið frá kaupum á Luke Shaw og Ander Herrera sem lá fyrir, en Van Gaal sjálfur hefur í raun ekkert keypt þótt hann gæfi grænt ljós á kaupin á Shaw og Herrera.

En hver er þessi Marcos Rojo og mun hann leysa varnarvandræði United? Norski knattspyrnusérfræðingurinn Tor-Kristian Karlsen, sem fylgist grannt með suður-ameríska boltanum, telur Rojo geta staðið sig á Old Trafford. Hann hefur fylgst með Argentínumanninum síðan hann spilaði með Estudiantes árið 2010.

„Þetta er ekki leikmaður sem stærstu félög heims slást um, en það má ekki gleyma því að United er ekki í Meistaradeildinni og gengur því illa að fá til sín bestu leikmennina,“ segir Karlsen í viðtali við norska miðla.

„Hann er líkamlega sterkur, fljótur og fimur varnarmaður sem hentar mjög vel í þriggja miðvarða kerfi. Sem bakvörður í fjögurra manna er hann ekki jafn góður.“

Norski sparksérfræðingurinn segir Rojo vera mjög góðan í að verjast á stóru svæði eins og oft vill verða í 3-4-1-2-kerfi Van Gaals og hann skili miklu fram á við.

„Ég held að United hafi vitað hvað vantaði í vörnina og Rojo passaði svona nokkurn veginn við lýsinguna. En ég hef haft rangt fyrir mér áður. Ég held, að með sínum opna og skemmtilega leikstíl geti Marcos Rojo orðið uppáhald manna á Old Trafford,“ segir Tor-Kristian Karlsen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×