Enski boltinn

Rodgers verður ekki rekinn

Brendan Rodgers fer ekki í atvinnuleit í sumar.
Brendan Rodgers fer ekki í atvinnuleit í sumar. vísir/getty
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, er búinn að funda með eigendum Liverpool um framtíðina hjá félaginu.

Fundurinn var mjög jákvæður og samkvæmt heimildum Sky Sports þá er starf Rodgers hjá félaginu ekki í neinni hættu. Hann verður áfram stjóri félagsins.

Félagið hefur ekki gefið út neitt opinbert um fundinn enn sem komið er. Tímabilið var vonbrigði hjá Liverpool þar sem félaginu tókst ekki að komast í Meistaradeildina.

Rodgers framlengdi samning sinn við félagið fyrir ári síðan og skrifaði þá undir nýjan fjögurra ára samning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×