Enski boltinn

Rodgers lofaði að gera vel í Evrópu en byrjaði á tapi gegn liði frá Gíbraltar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Brendan Rodgers var rekinn frá Liverpool og er nú tekinn við Celtic.
Brendan Rodgers var rekinn frá Liverpool og er nú tekinn við Celtic. vísir/getty
Ein óvæntustu úrslit í sögu Meistaradeildarinnar, eða að minnsta kosti forkeppni hennar, litu dagsins ljós í kvöld þegar Lincoln Red Imps frá Gíbraltar gerðu sér lítið fyrir og unnu skoska stórliðið Celtic, 1-0.

Þetta var fyrri leikur liðanna í annarri umferð forkeppni Meistaradeidlarinnar. Gíbraltar er fámennasta knattspyrnuþjóðin innan UEFA en aðeins búa um 30.000 manns í landinu.

Lee Casciaro, 34 ára gamall framherji Red Imps, skoraði eina mark leiksins á 48. mínútu en ótrúlegt en satt tókst skosku meisturunum ekki að koma boltanum í netið. Þeir þurfa nú 2-0 sigur á heimavelli til að komast áfram.

Brendan Rodgers, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, stýrði Celtic í kvöld í sínum fyrsta mótsleik en hann var ráðinn stjóri skoska risans fyrr í sumar.

Ekki er þetta bara skelfileg byrjun fyrir Rodgers heldur líka frekar vandræðaleg því á blaðamannafundinum þegar hann var ráðinn lofaði hann að leggja mikla áherslu á Meistaradeildina.

Rodgers og lærisveinar hans hafa nú verk að vinna ef þeir vilja ekki þurfa að þola vandræðalegasta skell í sögu Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×