Enski boltinn

Rodgers á leið í hnapphelduna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rodgers vill komast aftur í þjálfun.
Rodgers vill komast aftur í þjálfun. vísir/getty
Brendan Rodgers, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, er í leit að starfi þessa dagana.

Leitin að hinni einu réttu virðist hins vegar lokið en Rodgers bað unnustu sinnar, Charlotte Searle, á Times-torginu í New York um helgina.

Samkvæmt The Sun bar Liverpool stuðningsmaðurinn Craig Allen kennsl á Rodgers sem færði hinni 33 ára gömlu Searle blómvönd og fór svo á skeljarnar. Searle játaðist Rodgers en hún starfaði hjá Liverpool þegar þau kynntust.

Rodgers og Searle eru bæði fráskilin og eiga börn úr fyrri samböndum. Rodgers var giftur Susan í 14 ár en gengið var frá skilnaði þeirra 7. desember á síðasta ári.

Eins og áður sagði er Rodgers í atvinnuleit en hann þó hefur sagt að hann ætli ekki að taka við liði fyrr en í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×