Fótbolti

Rodgers: Ronaldo er besti leikmaður heims

Ronaldo mun leika listir sínar á Anfield í kvöld.
Ronaldo mun leika listir sínar á Anfield í kvöld. vísir/getty
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segir það skipta litlu fyrir sitt lið að Real Madrid verði án Gareth Bale í kvöld.

Liðin mætast þá í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á Anfield en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

„Gareth Bale er heimsklassaleikmaður en hópurinn hjá Real er risastór. Þeir geta tekið inn mann eins og Isco þannig að ég tel okkur ekki græða mikið á því að vera lausir við Bale," sagði Rodgers.

„Þetta verður gríðarlega erfiður leikur fyrir okkur. Real er auðvitað með Cristiano Ronaldo sem er án vafa besti leikmaður heims í dag. Hann er ótrúlegur. Við verðum að skipuleggja okkur vel og reyna að valda þeim vandræðum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×