Fótbolti

Rodgers: Enginn betri undir pressu en Steven Gerrard

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Brendan Rodgers vann sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni.
Brendan Rodgers vann sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni. vísir/getty
„Þetta var frábært kvöld fyrir alla sem tengjast félaginu,“ sagði sigurreifur BrendanRodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, eftir 2-1 sigur á búlgarska liðinu Ludogorets í Meistaradeildinni í kvöld.

„Það var frábært að vinna leikinn. Strákarnir sýndu karakter og héldu áfram. Þetta var víti. Það sást alveg á viðbrögðum leikmanna,“ sagði Rodgers, en sigurmarkið skoraði Steven Gerrard úr vítaspyrnu eftir að gestirnir jöfnuðu á 90. mínútu.

„Það er enginn betri undir pressu en Steven Gerrard. Þetta var svona leikur sem við hefðum tapað á fyrstu 5-6 mánuðum sem ég var hérna.“

„Markið hjá Balotelli var líka glæsilegt. Við sögðum honum að fara sem oftast inn í teiginn. Afgreiðslan var í heimsklassa,“ sagði Brendan Rodgers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×