Tónlist

Röddin brengluð í nýju lagi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hótelerfinginn og partípían Paris Hilton er búin að gefa út nýtt lag sem heitir Come Alive. 

Lagið er skrifað og pródúserað af Rondell Cobbs, Michael Puerari og Chris Richardson en lagið verður á nýrri plötu Parisar sem kemur út seinna á árinu.

Lagið er grípandi danslag en greinilega er búið að eiga við rödd Parisar með svokölluðu „auto-tune“ sem tryggir að hver sem er hljómar vel í hljóðveri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×