Skoðun

Rödd jarðar Andri Snær og 21. öldin

Ásta Arnardóttir skrifar
Þegar ég heyrði fyrst af framboði Andra Snæs þá fann ég uppstreymi innra með mér og löngun til að breiða út vængina og taka flugið. Það kom yfir mig svipuð tilfinning einsog á fjöllum þegar augnablikið er víðáttumikið og innihaldsríkt og tengingin við eilífðina eins og raungerist í tilvist öræfablóms á Sprenigsandi, söng himbrimans á Langasjó, ylminum af hreindýrahjörð á Kringilsárrana. Einhver ólýsanleg von og fögnuður fyllir hjartað.

Ég ætla að kjósa Andra Snæ til forseta vegna þess að jörðin þarf á því að halda. Andri Snær hefur fylgt sínum hjartans málum í tugi ára á skapandi og djúpstæðan hátt. Hann hefur tekið virkan þátt í að vernda náttúruna og efla meðvitund um mikilvægi þess að vernda lífríki jarðar, hann hefur hlúð að barnamenningu og sköpunargáfu barna og gefið ferska nærveru sína í hugmyndaspmiðjur og samsköpun meðal ólíkra fyrirtæka og fagaðila. Það sem einkennir alla hans nálgun er traust, opinn og frjáls hugur með djúpt innsæi og sprúðlandi sköpunargáfu.

Þegar við veljum forseta 21. öldinni þá erum við ekki bara að kjósa fulltrúa þjóðarinnar heldur líka fulltrúa jarðarinnar. Það er eitt mál sem er mál málanna í dag og það er náttúruvernd. Eins og Andri Snær kom að í ræðu sinni á kosningafundi í gær þá er móðurfrétt allra frétta hlýnun jarðar og allir mánuðir þessa árs hafa mælst heitustu mánuðir jarðar síðan mælingar hófust. Jörðin þarf á fulltrúum að halda. Þjóðarleiðtogar 21. aldarinnar eiga að hafa brennandi ástríðu fyrir því að bjarga jörðinni. Það er nánast of gott til að vera satt að við skulum á Íslandi hafa forsetaframbjóðanda sem lifir þann veruleika með þeim kærleika og því andlega þreki sem þarf til að stíga næstu skref.

Það má segja að lífríki jarðarinnar sé á síðustu mínútu leiktímans en við vonumst eftir framlengingu og sigurmarkinu. Við þurfum góða leikmenn í allar stöður og forseti Íslands gegnir mikilvægri stöðu, samsköpun þjóðanna á 21. öldinni snýst um að bjarga jörðinni. Það sem þarf er kærleikur, þekking og viljinn til verka. Jörðin er gömul og geymir djúpstæð lögmál visku og kærleika. Andri Snær er skýr og afdráttarlaus rödd jarðarinnar. Núna er tækifæri takk fyrir það Andri Snær.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×