Lífið

Rocco opnar klámskóla - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rocco þekkir þennan bransa vel.
Rocco þekkir þennan bransa vel. vísir
Ítalska klámstjarnan Rocco Siffredi hefur opnað sérstakan klámskóla fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á því að leika í klámmyndum.

Rocco segist hafa mikinn metnað fyrir því að leiðbeina nemendum sínum og sýna þeim hvernig þeir höndla bransann.

Skólinn nefnist University of Porn eða Klámháskólinn en Rocco stofnaði skólann ásamt nokkrum öðrum klámmyndaleikurum.

Siffredi hefur leikið í yfir 1300 klámmyndum á sínum ferli og þekkir því vel til.

„Ég lifi bara venjulegu lífi, í raun of vengulegu. Ég hef aldrei misst tengslin við raunveruleikan eftir að ég varð frægur,“ segir Rocco við ítalska miðilinn Perfil.

Þúsundir manna sóttu um í skólann en aðeins fékk 21 nemandi inngöngu. Sjö konur og fjórtán menn og auðvitað verður allt tekið upp á myndband og læra nemendur einmitt að vinna með myndatökuvélinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×