Lífið

Robin Thicke búinn að gefast upp

Búið spil.
Búið spil. getty/nordicphotos
Söngvarinn Robin Thicke er búinn að gefast upp á því að vinna fyrrum eiginkonuna, Paulu Patton, aftur á sitt band.

Parið gifti sig fyrir átta árum eftir tuttugu ára sambúð en ákvað að slíta sambandinu fyrr á árinu og var hávær orðrómur uppi um að Thicke hefði verið eiginkonunni ótrúr.

Hann reyndi hins vegar allt hvað hann gat til þess að bjarga hjónabandinu og skírði hann meðal annars nýjustu plötu sína „Paula“ við dræmar undirtektir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×