Handbolti

Róbert skoraði þrjú mörk í bikarsigri

Róbert í leik með PSG.
Róbert í leik með PSG. vísir/afp
Róbert Gunnarsson og félagar hans í franska liðinu PSG eru komnir í átta liða úrslit í frönsku bikarkeppninni.

PSG vann þá heimasigur, 29-26, á Istres. PSG alltaf skrefi, og skrefum, á undan og sigurinn í lítilli hættu.

Róbert skoraði þrjú mörk í leiknum og þar af tvö úr vítum. Hann nýtti öll skot sín í leiknum.

Mikkel Hansen markahæstur í liði PSG með sex mörk og Samuel Honrubia skoraði fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×