Tónlist

Robert Plant vill vinna með Jack White

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Getty
Tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Jack White hefur unnið með fjöldanum öllum af frægum rokkurum í gegnum tíðina svo sem Wanda Jackson, Neil Young og Jerry Lee Lewis.

Nú hefur rokkrisaeðlan og annar Íslandsvinur Robert Plant úr Led Zeppelin lýst yfir áhuga sínum á því að vinna með White. Plant vinnur nú að nýrri plötu og samkvæmt tónlistarmiðlinum Consequence of Sound sagði Plant á Fésbókinni sinni: „Ég elska ævintýrasemina hans Jack White og hvernig hann leikur sér með mismunandi tónlistarstefnur. Ég væri mjög til í að vinna breiðskífu með honum.“

Plant er á leiðinni til Nashville í næstu viku en þar er upptökuver Whites einmitt staðsett.

White verður því miður á tónleikaferðalagi þá en báðir rokkararnir munu halda eigin tónleika í Leeds í Bretlandi 17. nóvember.

Hugsanlega verður eitthvað úr samstarfinu upp úr því en lag með þeim tveim myndi vafalaust gleðja marga rokkaðdáendur heimsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×