Handbolti

Róbert með mark í naumum sigri PSG

Anton Ingi Leifsson skrifar
Róbert skoraði eitt mark í dag.
Róbert skoraði eitt mark í dag. Vísir/Getty
PSG vann eins marks sigur á Meshkov Brest í Meistaradeildinni í handbolta í dag. Leikurinn var spennandi, en frönsku meistararnir reyndust sterkari.

PSG leiddi með þremur mörkum í hálfleik 12-15 og unnu að lokum eins og fyrr segir eins marks sigur, 28-29.

Fahrudin Melic skoraði tíu mörk fyrir PSG og var markahæstur. Næstur kom Mikkel Hansen með sjö. Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark.

Rastko Stojkovic skoraði sjö mörk fyrir heimamenn og Dzianis Rutenka sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×