Innlent

Róbert Marshall telur sjálfstæðismenn í Eyjum rækta með sér skrýtnar skoðanir

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Róbert Marshall er ekki sammála ákvörðun Páleyjar Borgþórsdóttur.
Róbert Marshall er ekki sammála ákvörðun Páleyjar Borgþórsdóttur. Vísir/Vilhelm
Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, segir Vestmannaeyjar vera eina þéttustu byggð sjálfstæðismanna á byggðu bóli. Hann segir jafnframt sjálfstæðismenn í Vestmanneyjum hörundsára og rækta með sér skrýtnar skoðanir.

Róbert Marshall þingmaður skrifar á Facebooksíðu sína færslu þar sem hann furðar sig á ákvörðun Páleyjar Borgþórsdóttur lögreglustjóra í Vestmannaeyjum þess efnis að neita að upplýsa um kynferðisbrot sem upp komu á Þjóðhátið. Þingmaðurinn, sem er einmitt sjálfur úr Eyjum, telur einkennilegan þankagang ríkjandi í þar sem helgast af einangrun; hver mæli vitleysuna upp í öðrum.

Páley Borgþórsdóttir beindi því til lögreglumanna og einnig annars starfsfólks sem heyrir ekki undir hana að tjá sig ekki um kynferðisbrot við fjölmiðla.
Hann segir Vestmannaeyinga ekki illa meinandi fólk, en þar sé nú þéttasta byggð sjálfstæðismanna á byggðu bóli, fólkið þar hitti fáa andmælendur í sínum heimabæ og „ræktar með sér skrýtnar skoðanir“. Margir uppi á landi verða hissa að heyra þær en, Eyjamönnum sé fyrirmunað að skilja það: „Svo verða þeir alltaf jafn hissa og sárir þegar býsnast er á skoðunum þeirra.“

Annars er færsla Róberts svohljóðandi:

„Þegar best lét verptu 20% heimsstofns lunda í Vestmannaeyjum en það er liðin tíð, því miður. Þar er nú í staðinn ein þéttasta byggð Sjálfstæðismanna á byggðu bóli. Þetta er ekki illa meinandi fólk en það hittir fáa andmælendur í sínum heimabæ og ræktar með sér skrítnar skoðanir sem margt fólk uppi á landi verður hissa á að heyra. Nú síðast skilningur lögreglustjórans á upplýstri umræðu um samfélagsmein. Svo verða þeir alltaf jafn hissa og sárir þegar býsnast er yfir skoðunum þeirra.“


Tengdar fréttir

Upplýstu um kynferðisbrot vegna frétta frá neyðarmóttöku

Þrjár konur hafa leitað til neyðarmóttöku kynferðisbrota á Landspítalanum í Fossvogi eftir Verslunarmannahelgina. Brotin voru öll framin á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Einn þriðji þeirra sem leitar á neyðarmóttökuna er undir lögaldri. Páley Borgþórsdóttir sér ekki eftir ákvörðun um að upplýsa ekki um fjölda kynferðisbrota á Þjóðhátíð. Ekki stóð til að upplýsa strax um fjölda kynferðisbrota en upplýsingagjöf neyðarmóttökunnar varð til þess að lögreglan í Vestmannaeyjum fylgdi á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×