Handbolti

Róbert í undanúrslit bikarsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Róbert Gunnarsson í leik með PSG.
Róbert Gunnarsson í leik með PSG.
Róbert Gunnarsson og félagar í PSG eru komnir áfram í undanúrslit frönsku bikarkeppninnar eftir sigur á Créteil í kvöld, 28-25. PSG hafði tveggja marka forystu í hálfleik.

Róbert var í byrjunarliði PSG í kvöld en í gærkvöldi komst Montpellier áfram eftir sigur á Toulouse. 8-liða úrslitunum lýkur svo síðar í vikunni.

Í Svíþjóð hafði Ricoh betur gegn Önnereds í botnslag, 24-18. Tandri Már Konráðsson skoraði tvö mörk fyrir Ricoh sem er í þriðja neðsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með sautján stig. Önneredds er næstneðst með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×