Handbolti

Róbert Aron áfram í Eyjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Róbert Aron og félagar féllu úr leik fyrir Val í 8-liða úrslitum Olís-deildarinnar.
Róbert Aron og félagar féllu úr leik fyrir Val í 8-liða úrslitum Olís-deildarinnar. vísir/anton
Róbert Aron Hostert hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV.

Róbert Aron lék fyrst með ÍBV tímabilið 2013-14 þegar hann hjálpaði Eyjamönnum að vinna Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Róbert Aron fór svo til Danmerkur þar sem hann lék með Mors-Thy í tvö ár.

Róbert Aron sneri svo heim fyrir þetta tímabil og gekk í raðir ÍBV á nýjan leik. Hann var meiddur framan af tímabili en kom sterkur inn eftir áramót.

Eyjamenn enduðu í 2. sæti Olís-deildarinnar og féllu svo úr leik fyrir Val í 8-liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×