Enski boltinn

Robben: Van Gaal kemur Man. Utd aftur í Meistaradeildina

Vam Gaal og Robben faðmast á HM síðasta sumar.
Vam Gaal og Robben faðmast á HM síðasta sumar. vísir/getty
Hollenski vængmaðurinn Arjen Robben þekkir stjóra Man. Utd, Louis van Gaal, vel og efast ekkert um að hann muni rífa lið Man. Utd upp á nýjan leik.

„Það er eðlilega pressa hjá félagi eins og Man. Utd þegar illa gengur en ég efast ekki um að félagið viti hvernig þjálfara það er með. Ég er handviss um að hann á eftir að gera það gott á Old Trafford," sagði Robben sem hefur spilað undir stjórn Van Gaal hjá Bayern og hollenska landsliðinu.

„Ég hef þekkt hann mjög lengi og hann er einn fárra þjálfara sem gera bæði lið og leikmenn betri. Hann mun koma Man. Utd aftur í Meistaradeildina á næstu leiktíð en þar á félagið heima."

Robben er nýbúinn að jafna sig á meiðslum og spilaði síðustu mínúturnar fyrir Bayern í leiknum gegn Man. City í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×