Tónlist

Rjúkandi heitt myndband frá Vaginaboys

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þeir koma alltaf fram grímulæddir.
Þeir koma alltaf fram grímulæddir. vísir/stefán
Hljómsveitin Vaginaboys hefur gefið út nýtt myndband við lagið Ekki nóg.

Á huldu er hverjir meðlimir hljómsveitarinnar eru, á tónleikum spila þeir með grímur, syngja í gegnum talgervil og á Facebook-síðunni er engin grein gerð fyrir nöfnum meðlima en þeir spila draumkennda raftónlist.

Samhliða myndbandinu gefur sveitin út sína fyrstu smáskífu sem kemur úr á iTunes, Spotify, Soundcloud og fleiri miðlum.

Vaginaboys eru virkir á öllum helstu samfélagsmiðlum. Hér eru þeir á Facebook,InstagramTumblrMyspaceSoundcloudTwitter og halda einnig úti vefsíðunniVaginaboys.com.

Áhugasamir geta einnig fylgst með þeim á Snapchat þar sem notendanafnið þeirra er vaginaboys.

Hér að neðan má sjá þetta krassandi myndband. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×