Matur

Rjómaostatoppar með hvítu súkkulaði

Eva Laufey skrifar
Jólabaksturinn er rétt handan við hornið og því er kjörið að taka smáforskot á sæluna. Þessar kökur má samt baka hvar og hvenær sem er, það þarf ekki að binda þær við jólatímann. Mér finnst gott að fá mér smákökur af og til, enda tekur enga stund að henda í eina uppskrift.

Rjómaostatoppar með hvítu súkkulaði

220 g smjör

200 g hreinn rjómaostur

225 g púðursykur

225 g sykur

2 egg

4 tsk vanillusykur

600 g hveiti

½ tsk salt

3 tsk kanill

1 tsk lyftiduft

4 msk mjólk

100 g hvítt súkkulaði

Til að rúlla deiginu í:

100 g sykur

2 tsk kanill

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C. Hrærið smjör, rjómaost, sykri saman þar til blandan verður kremkennd. Bætið eggjum út í, einu í einu og hrærið vel á milli.

Blandið vanillu,hveiti, lyftidufti, salti og kanil saman við deigið og hrærið vel í. Bætið mjólkinni út í smáum skömmtum. Kælið deigið í 7 – 10 mínútur. Mótið litlar kúlur með tveimur teskeiðum og rúllið upp úr kanilsykrinum.

Setjið kökurnar á pappírsklædda ofnplötu og inn í ofn við 180°C í 8 – 10 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×