Körfubolti

Rivers og Pierce sóttu ekki gull í greipar Boston | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Isiah Thomas skoraði 36 stig í sigri Boston.
Isiah Thomas skoraði 36 stig í sigri Boston. vísir/getty
Tólf leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Doc Rivers og Paul Pierce tókst ekki að sækja sigur á sinn gamla heimavöll þegar Boston Celtics vann fimm stiga sigur, 139-134, á Los Angeles Clippers eftir framlengdan leik.

Isiah Thomas fór mikinn í liði Boston og skoraði 36 stig og gaf 11 stoðsendingar. Þá var Jared Sullinger nálægt þrennunni með 21 stig, 11 fráköst og sjö stoðsendingar.

Chris Paul var með 35 stig og 13 stoðsendingar í liði Clippers en JJ Redick kom næstur með 27 stig.

Sigurganga Golden State Warriors heldur áfram en í nótt unnu meistararnir átta stiga sigur á Phoenix Suns, 104-112.

Þetta var ellefti sigur Golden State í röð en liðið er búið að vinna 48 af fyrstu 52 leikjum sínum á tímabilinu.

Stephen Curry var hársbreidd frá því að vera með þrennu en hann skoraði 26 stig, tók níu fráköst og gaf níu stoðsendingar í liði Golden State. Klay Thompson kom næstur með 24 stig.

Kyrie Irving skoraði 35 stig þegar Cleveland Cavaliers lagði Los Angeles Lakers að velli, 120-111. Þetta var þriðji sigur Cleveland í röð.

LeBron James skilaði 29 stigum, sjö fráköstum og 11 stoðsendingum fyrir Cleveland sem lék án Kevin Love í seinni hálfleiknum.

Lou Williams var stigahæstur í liði Lakers með 28 stig en Kobe Bryant skoraði 17 stig í sínum síðasta leik í Cleveland á ferlinum.

Úrslitin í nótt:

Boston 139-134 LA Clippers

Phoenix 104-112 Golde State

Cleveland 120-111 LA Lakers

Indiana 95-117 Charlotte

Orlando 96-98 San Antonio

Philadelphia 110-114 Sacramento

Brooklyn 90-109 Memphis

Detroit 92-103 Denver

Chicago 90-113 Atlanta

New Orleans 100-96 Utah

Portland 116-103 Houston

Isiah Thomas tryggir Boston framlengingu Kyrie Irving var sjóðheitur í nótt Kawhi Leonard tryggir San Antonio sigur á Orlando
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×