Handbolti

Rivero var túlkur Saric | Neitaði að ræða um þjóðerni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Saric var hetja Katarmanna eftir leikinn í kvöld.
Saric var hetja Katarmanna eftir leikinn í kvöld. Vísir/Eva Björk
Valero Rivero, hinn spænski þjálfari landsliðs Katars, sá til þess að hvorki hann né markvörðurinn Danijel Saric svöruðu spurningum blaðamanna sem snerust um annað en handbolta.

„Við spiluðum okkar besta handbolta á þessu móti í fyrri hálfleik. Það dugði til að vinna þennan leik,“ sagði Rivera á blaðamannafundinum eftir leikinn í kvöld. Katar leiddi lengst af í leiknum og vann að lokum sigur.

„Ég er mjög ánægður fyrir hönd liðsins, fyrir hönd handknattleikssambands Katars og þjóðarinnar allrar. Katar hefur gert mikið fyrir handboltaíþróttina og á skilið að verða fyrsta Asíuþjóðin sem kemst í undanúrslit heimsmeistaramóts,“ bætti þjálfarinn við.

Markvörðurinn Danijel Saric varði stórkostlega þegar mest á reyndi undir lok leiksins og var valinn maður leiksins. Saric er fæddur í gömlu Júgóslavíu, er Bosníumaður, en hefur spilað með landsliðum Serbíu og Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu og Hersegóvínu og nú Katar.

„Ég er afar hamingjusamur með að vera kominn í undanúrslitin. Mér fannst fyrri hálfleikur frábærlega spilaður hjá okkur en Þjóðverjar voru góðir í seinni hálfleik. Við gáfum allt sem við áttum og það dugði til,“ sagði Saric á spænsku en hann leikur nú með Barcelona. Rivero talaði á ensku og tók að sér starf túlks fyrir Saric á blaðamannafundinum.

„Það er hápunktur minn ferils að spila í undanúrslitum á HM. Við eigum það skilið, liðið og leikmenn sem og þjóðin öll. Vonandi tekst okkur að fara enn lengra um helgina.“

Saric var spurður hvort að hann upplifði sig meira sem Katarbúi með hverjum deginum. Valero greip inn í og sagði að þeir myndu engum spurningum svara nema þeim sem sneri að handbolta.

Valero var síðar spurður hvort að hann teldi að handboltalandslið þjóðarinnar, sem er að mestu byggt upp á aðkomumönnum, gæti verið fyrirmynd fyrir landslið Katar í öðrum íþróttum.

„Jú, þetta hefur gefið góða raun. En ég er handboltaþjálfari og tjái mig aðeins um handbolta,“ sagði Rivero.


Tengdar fréttir

Gensheimer: Klúðruðum góðu tækifæri

Uwe Gensheimer var daufur í dálkinn eftir tapið gegn Katar. Hann var markahæstur í þýska liðinu, skoraði 5 mörk úr 7 tilraunum. Goran Stojanovic varði 2 vítaköst hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×