Fótbolti

Rivaldo: Neymar þarf að koma sér frá PSG

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Neymar fer nú ekki frá PSG alveg strax.
Neymar fer nú ekki frá PSG alveg strax. vísir/getty
Fyrrum bestu knattspyrnumaður heims, Rivaldo, segir að landi sinn, Neymar, þurfi að fara frá PSG ef hann ætlar sér að verða besti knattspyrnumaður heims.

Rivaldo vann marga titla hjá Barcelona á árunum 1997 til 2002. Hann var valinn besti knattspyrnumaður heims árið 1999 og vann HM árið 2002.

„Ég hef áður sagt að Neymar geti orðið besti knattspyrnumaður heims. Ég hef samt ekki trú á því að hann nái því hjá PSG,“ sagði Rivaldo.

„Neymar þarf að koma sér frá PSG. Ef þú ætlar að vera sá besti þá þarftu að spila á Spáni. Það er vissulega erfitt fyrir hann að fara aftur til Barcelona en miðað við það sem ég hef heyrt frá fólki þá er ekki ólíklegt að hann fari til Real Madrid í framtíðinni.“

Neymar er þessa dagana í heimalandinu að jafna sig eftir aðgerð. Hann verður klár fyrir HM og ætlar sér stóra hluti þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×